Gunnar Örn Gunnarsson

No Comments »

Gunnar Örn Gunnarsson

Sem lést af slysförum í Tansaníu laugardaginn 18. febrúar. verður jarðsunginn  miðvikudaginn 7. mars kl. 15.00 frá Dómkirkjunni í Reykjavík.

Uncategorized March 6th 2012

Box 101 hefst að nýju 5 sept.

No Comments »

Mjölnir og Hnefaleikafélag Reykjavíkur kynna nýtt námskeið, BOX 101. Námskeiðið hefst mánudaginn 5. september og stendur í tvo mánuði. Næsta námskeið hefst svo um leið og því fyrsta lýkur, eða á tveggja mánaða fresti.
Farið verður í grunnatriði í ólympískum hnefaleikum; helstu árásir, varnir, fótaburð, hvernig á að æfa sig með box og fókus-púðum og margt fleira.
Verð á námskeiðið er það sama og á Mjölnir 101, eða 17.900.
Æfingar eru mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl 19:00 í glæsilegum ný-innréttuðum box sal í Seljavegi 2 (húsnæði Mjölnis), en þar er Hnefaleikafélagið vera með aðstöðu sína.

Þjálfarar á námskeiðinu verða margir af færustu hnefaleikurum landsins og íslandsmeistarar úr röðum Hnefaleikafélags Reykjavíkur.
Skráning á mjolnir@mjolnir.is

Uncategorized August 18th 2011

Hnefaleikafélagið flytur

No Comments »

Eins og glöggir aðilar hafa tekið eftir þá er Hnefaleikafélag Reykjavíkur að flytja.

Mun stundatafla breytast í kjölfarið ásamt húsnæði.

Við förum þó ekki langt, heldur verðum við í húsnæði loftkastalans, Seljavegi 2, 101 Reykjavík.

Verður ný dagskrá kynnt í vikunni.

Uncategorized May 30th 2011

Íslandsmeistaramótinu 2011 lokið

No Comments »

Þá er Íslandsmeistaramótinu í hnefaleikum 2011 lokið. Undanúrslitin fóru fram í húsnæði HFH að Dalshrauni 10 laugardaginn 16 apríl. Vegna mikils fjölda keppenda þurfti að keppa tvisvar í sumum þyngdarflokkum. Fyrri viðureignirnar voru kl. 14 og voru þær 5 samtals í þremur þyngdarflokkum. Seinni viðureignirnar fóru síðan fram kl. 20.00 og voru þær 8 samtals í 5 þyngdarflokkum. Úrslitin fóru síðan fram á Broadway síðasta vetrardag 20. apríl, þar voru 13 viðureignir í 12 þyngdarflokkum og ein brons viðureign. Óhætt er að segja að mikil spenna hafi verið á úrslitakvöldinu sem og á undanúrslitunum og gríðarleg stemming í húsinu. Kepptar voru alls 26 viðureignir á Íslandsmeistaramótinu núna og er óhætt að segja að ekki hafa verið eins margar viðureignir á Íslandsmeistaramóti síðan 2006. Við hjá H.R erum nokkuð sáttir með okkar útkomu á mótinu en við unnum 5 gull, 6 silfur og 3 brons. Viljum við þakka okkar keppendum sem og keppendum annara félaga fyrir skemtilegt mót.

Við fengum eins og í fyrra ljósmyndarann Arnþór Birkisson til að taka myndir af keppendum og síðan á kvöldinu sjálfu og skilaði hann nú eins og í fyrra frábærum myndum sem sóma sér vel í minningarbankanum. Ég setti 360 myndir frá honum af viðureignunum á Broadway á flickr og er linkur á þær hér.

Myndir frá Broadway

Uncategorized May 1st 2011

ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ Í HNEFALEIKUM 2011

No Comments »

Íslandsmeistaramótið í hnefaleikum verður haldið á BROADWAY miðvikudaginn 20 apríl (síðasta vetrardag) kl. 20.00, húsið opnar kl. 19.00.
Keppt verður í 12 þyngdarflokkum og í þremur þeirra verður einnig keppt um brons. Kvetjum við alla boxáhugamenn og konur til að mæta á Broadway og kvetja menn/konur, búast má við gríðarlegri stemmningu og grimmum viðureignum.

Aðgangseyrir verður kr. 1500

Uncategorized April 19th 2011

Undanúrslit Íslandsmeistaramótsins 2011

No Comments »

Á laugardaginn var voru haldin undanúrslit Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum. Keppnin var haldin í húsnæði H.F.H að Dalshrauni 10. Vegna fjölda keppenda í sumum þyngdarflokkum varð að keppa tvisvar yfir daginn, undankeppnin hófst kl. 14.00 og voru viðureignir 5 í þremur þyngdarflokkum en sjálf undanúrslitin fóru síðan fram kl. 20.00 og og voru viðureignir þar 8 í 5 þyngdarflokkum. Gríðarleg stemming myndaðist enda margir sterkir einstaklingar að eigast við

Uncategorized April 19th 2011

Íslandsmeistaramótið 2011 sjónvarpstrailer

No Comments »

Set hér inn að gamni trailer sem Rúv gerði og mun sýna hjá sér til að kynna keppnina.

Uncategorized April 16th 2011

Undankeppni Íslandsmeistaramótsins í Hnefaleikum 2011

No Comments »

Undankeppnin fer fram í húsnæði Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar laugardaginn 16 apríl. Vegna fjölda þáttakenda í sumum þyngdarflokkum verður að keppa 2 á laugardeginum. Fyrri viðureignirnar hefjast kl. 14.00 en þær síðari kl. 20.00 aðgangur verður frír og kvetjum við alla til að mæta og styðja sitt fólk.

Úrslitakvöldið mun síðan fara fram á Broadway miðvikudaginn 20. apríl kl.20.00 en húsið kemur til með að opna kl. 19.00 aðgangseyrir mun vera kr.1500

Uncategorized April 16th 2011

Skákbox í Laugardalshöll.

No Comments »

Glæsilegt kvöld hjá CCP í Laugardalshöll og heppnaðist í alla staði frábærlega. Við H.R ingar erum mjög ánægðir með að hafa aðstoðað við uppsetningu þessa viðburðar. Gaman að sjá nýjan vinkil á sportinu.

Uncategorized April 14th 2011

Kyningarmyndband fyrir Íslandsmeistaramótið 2011

No Comments »

Uncategorized April 8th 2011